EB.IS

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Einar Beinteins ehf. er fyrirtæki sem byggir á reynslu frá árinu 1928.

Það ár hóf afi minn Ásgeir Valur Einarsson nám í veggfóðrun og dúkalögn hjá Sveinbirni Ögmundssyni.

Á árunum í kringum 1930 og fram eftir öldinni var mikið veggfóðrað. Oft voru veggir klæddir með hessían striga sem var strengdur á veggi horn í horn og pappír límdur yfir, síðan var málað eða veggfóðrað yfir. Hessían striginn var mikið notaður til að klæða innveggi í timburhúsunum sem þá voru mjög algeng. Einnig eru dæmi um að hann hafi verið notaður sem klæðning yfir timburveggi í steinhúsum.
Gólfefni voru undantekningalaust linoleum.

Á þessum árum var ekki algengt að iðnaðarmenn hefðu bíla til afnota. Afi minn t.d. fór um bæinn á reiðhjóli með límfötuna á stýrinu og verkfærin á bögglaberanum og veggfóðraði og dúkalagði fyrir bæjarbúa.

Faðir minn Beinteinn Ásgeirsson hóf nám hjá afa mínum árið 1947 og starfaði í faginu í 57 ár eða þar til hann hætti störfum nú um áramótin 2004. Ég, Einar Beinteinsson byrjaði að læra fagið árið 1977 en þar áður hafði ég unnið töluvert með skólanum, bæði með afa og pabba.

Ég fékk meistararéttindi árið 1988 og hef starfað sjálfstætt síðan. Ég er þriðji ættliður í beinan karllegg í þessari iðngrein og tel mig búa yfir mikilli reynslu og þekkingu á sviði gólf og veggefna. Ég hef reynslu af gömlum og nýjum vinnuaðferðum og efnum sem spanna 76 ár í sögu veggfóðrunar og dúklagninga.

Skoðið einnig síðu félags dúkalagningameistara

 

 
Þú ert hér: Forsíða